Monday, September 11, 2006

Hrós



Ég fór alltíeinu að hugsa um það þegar ég hætti að vinna sem aðstoðarlæknir á Kleppi. Þegar ég hætti kvaddi ég alla bless bless og sagði takk fyrir mig. Áður en ég fór átti ég samtal í einrúmi við sérfræðinginn sem ég var mest með .
- Sverrir, þú hefur staðið þig mjög vel.
- Já, er það?
- Já, þú hefur staðið þig mjög vel, þú ert eiginlega ómissandi á deildinni núna.
- Já, þakka þér fyrir.
- Já, þú hefur staðið þig mjög vel og ég vil að þú vitir það.
- Já.
- Já? Já, þú hefur staðið þig frábærlega.
- Já, takk fyrir það.
- Já, og svo verður þú að læra að taka hrósi.
- Já.
- Já, þú verður að læra að taka hrósi.
- Já.
- Takk fyrir samstarfið.
- Já, takk fyrir samstarfið.

Svo tókumst við í hendur.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Samtalið átti að vera svona:

Læknirinn - "Sverrir þú hefur staðið þig mjög vel"
Þú - " Ég veit ég heiti Sverrir Gunnars og er framúrskarandi "

Punktur
Heiða

12:40 PM  

Post a Comment

<< Home