Saturday, September 23, 2006

Herra vinsæll


Núna eru 315 manns búnir að skoða prófílinn minn á þessari síðu. Það þýðir náttúrulega að traffíkin á síðunni er rosaleg. Kannski mörg hundruð heimsóknir á dag. Þetta er mjög mikið. Sérstaklega miðað við það að ég er bara búinn að blogga í örfáa mánuði.

Og ég er næstum því handviss um:

að um 90% af innlitunum á síðunni eru sætar stelpur sem eru aðdáendur mínir númer eitt

að ég hafi kysst (að minnsta kosti) meirihlutann af stelpunum sem skoða síðuna mína

að ég er með símanúmer meirihluta þessara sætu stelpna í gemsanum mínum

að vinsældir síðunnar minnar (og vinsældir mínar að sjálfsögðu) eigi eftir að fara vaxandi

að sætu stelpurnar sem eru alltaf að skoða síðuna mína séu búnar að segja sætu vinkonunum sínum frá síðunni minni

að sætu vinkonur sætu stelpnanna eru núna líka alltaf að skoða síðuna mína

að mér hættir til fá óraunhæfar hugmyndir en það er allt í lagi af því að ég er svo vinsæll

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

og þú eyðir tíma í að blogga um hvað þú haldir að þú sért vinsæll hjá telpunum sem hafa litið á prófíl, apakötturinn þinn

8:03 AM  
Blogger Rustakusa said...

dísess.. þú þarft að fara að ganga út góurinn :-D

..afhverju ertu ekki genginn út ?

3:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég kíki nánast daglega brósi minn...ég er ennþá svo ánægð með litlu söguna um tómatinn og eggið ;)

12:58 AM  

Post a Comment

<< Home