Saturday, October 28, 2006

Mig langar í bát



Ég veit núna hvað það er sem mig langar mest af öllu til að eignast. Það er bátur. Mig langar rosalega til að eignast bát. Ég fattaði það þegar ég var að skoða mynd af mér þegar ég var lítill. Á myndinni er með pabba og við erum í bát. Þar er ég skælbrosandi og hæstánægður með það að vera í bát.

Ég var bara búinn að gleyma því hvað mér finnst gaman að vera í bát en núna mundi ég það og mig langar í bát. Ég ætla að byrja að safna fyrir honum í dag. Eða kannski vill einhver gefa mér bát. Jólin eru að koma þannig að ef ég bið fallega og haga mér vel þá fæ ég kannski bát í jólagjöf.

Óskalistinn yfir jólagjafir í ár verður því svona:

1. Bátur
2. Bátur
3. Bátur


3 Comments:

Blogger Rustakusa said...

Varstu svona ljóshærður sem krakkalingur ?
....og mikið assgoti er hann pabbi þinn myndarlegur :-)

12:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hvers þurfið þér bát? Enginn er eyland.

-ÖPR

1:49 PM  
Anonymous Anonymous said...

Alveg hefurðu fáranlega lítið breyst. Fyrir utan háralitinn, hæðina, svipinn og fatnaðinn ertu svo gott sem sama manneskjan.

-Sólveig

3:42 PM  

Post a Comment

<< Home